Fara í efni

Móholt 14-16 laus til umsóknar - Auglýsing

27.10.2020
Fréttir

Lóðin Móholt 14-16 er hér með auglýst til úthlutunar í samræmi við reglur Stykkishólmsbæjar um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði og bætist hún þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er 10 dagar. Lóðin er á skilgreindu íbúðarsvæði og er ætluð fyrir einlyft par- eða einbýlishús samkvæmt skipulagsskilmálum.

Skipulagsfulltrúi Stykkishólmsbæjar veitir allar nánari upplýsingar í síma 433-8100 eða í Ráðhúsi Stykkishólmsbæjar.

Til upplýsinga má jafnframt sjá á þjónustusíðu umhverfis-, skipulags- og mannvirkjamála yfirlit yfir aðrar lausar lóðir í Stykkishólmi.


Getum við bætt efni síðunnar?