Lys op for stop
Nú þegar skammdegið færist yfir er gott að huga að sýnileika og draga fram endurskinsmerkin, jafnt börn sem fullorðnir.
Með því að gera sig sýnilega með endurskinsmerkum auka gangandi og hjólandi vegfarendur eigið öryggi. Ökumenn sjá þá vegfarendur fyrr og eru því líklegri til að stoppa þegar þörf er á, eða eins og daninn segir gjarnan Lys op for stop! Raunar er það strætisvagnafyrirtækið Sydtrafik sem kastaði þessum frasa fram til að hvetja viðskiptavini sína til að láta meira á sér bera við stoppistöðvar. En dönsk skólabörn gripu frasan á lofti og nota óspart til að hvetja til notkunar endurskinsmerkja almennt.
Staðsetning endurskinsmerkja
Samkvæmt Samgöngustofu er best að hafa endurskinsmerki á eftirfarandi stöðum:
- Fremst á ermum
- Hangandi meðfram hliðum
- Á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum
Þá virkar endurskin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina óvarða vegfarendur þeim mun minni líkur eru á að slys verði.