Fara í efni

Lóðirnar Austurgata 6A og Aðalgata 5A lausar til úthlutunar

24.03.2023
Fréttir

Lóðirnar Austurgata 6A og Aðalgata 5A eru hér með auglýstar til úthlutunar í samræmi við reglur sveitarfélagsins um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði og bætast þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2023.

Berist fleiri en ein umsókn á lóð áður en umsóknarfrestur rennur út sem uppfyllir skilyrði úthlutunarreglna sveitarfélagsins skal hlutkesti ráða úthlutun. Eftir þann tíma skal úthluta lóðinni til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar að uppfylltum skilyrðum reglnanna.

Sækja má um lóðirnar í íbúagátt Stykkishólms ("Umsóknir" -> "Umsókn um lóð")
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í Ráðhúsinu, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða í síma 433-8100 eða á heimasíðu sveitarfélagsins, stykkisholmur.is.

Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og skráðar eru á úthlutunarlista sem finna má á vefsjá Stykkishólms.

Sjá nánar gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.

Austurgata 6A
Getum við bætt efni síðunnar?