Fara í efni

Lóðin Hjallatangi 48 laus til úthlutunar

18.06.2024
Fréttir

Lóðin Hjallatangi 48 eru hér með auglýst til úthlutunar í samræmi við reglur Stykkishólms um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði og bætist þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2024.

Berist fleiri en ein umsókn um sömu lóð áður en umsóknarfrestur rennur út sem uppfylla skilyrði úthlutunarreglna sveitarfélagsins skal hlutkesti ráða úthlutun. Eftir þann tíma skal úthluta lóðinni til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar að uppfylltum skilyrðum reglnanna.

Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar í desember 2023 er veittur 70% afsláttur af gatnagerðargjöldum vegna lóðarinnar á Hjallatangi 48, en umsækjandi skal greiða 100.000 kr. staðfestingargjald og er staðfestingargjald óafturkræft verði umsækjanda úthlutað viðkomandi lóð.

Sækja má um lóðina/lóðirnar í íbúagátt Stykkishólms.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í Ráðhúsinu, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða í síma 433-8100 eða á heimasíðu sveitarfélagsins, stykkisholmur.is.

Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og skráðar eru á úthlutunarlista sveitarfélagsins sem finna má á vefsjá Stykkishólms.

Þá er vakin athygli á óverulegri breytingu á deiliskipulagi við Nónvík sem tók gildi 15. maí

Hjallatangi 48 - DSK
Getum við bætt efni síðunnar?