Fara í efni

Lista- og menningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

05.12.2018
Fréttir

Lista- og menningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki
Samkvæmt reglum sjóðsins, sem finna má í heild sinni hér er hlutverk sjóðsins meðal annars að:

Styðja og styrkja lista- og menningarstarf í Stykkisólmi og hvetja til nýsköpunar á sviði lista og menningar
Styðja við útgáfustarfsemi og viðburði er varða sögu, menningu og atvinnuhætti bæjarins.
Styðja við varðveislu menningarminja
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Stykkishólmsbæjar fyrir Nýársdag og tekur Stjórn lista- og menningarsjóðs ákvörðun um úthlutun 7. Janúar 2019
Umsóknir skulu vera skriflegar og undirritaðar og umsóknir sem berast í tölvupósti jafngilda skriflegri umsókn.
Hverri umsókn skal fylgja greinargerð um starfsemi viðkomandi félags og/eða að verkefni sem vinna skal að.

 

Fyrir hönd Stjórnar lista- og menningarsjóðs
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
hrafnhildur@stykkisholmur.is

Getum við bætt efni síðunnar?