Lengdur útboðsfrestur - Gatnagerð í Stykkishólmi - Víkurhverfi
Sveitafélagið Stykkishólmur, Veitur ohf., Rarik ohf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í verkið: Gatnagerð í Stykkishólmi – 1. áfangi – Víkurhverfi, Gatnagerð og lagnir.
Verkið felur í sér jarðvinnu gatna–og gangstétta fyrir nýtt hverfi ásamt mótun og frágang regnvatnslautar. Verktaki skal einnig annast alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja á svæðinu.
Helstu magntölur eru:
Gröftur fyrir götum...................... 11.400 m3
Fylling/styrktarlag/jöfnunarlag,aðflutt efni.. 7.700 m3
Fráveitulagnir.............................. 1.200 m
Vatnsveitulagnir.......................... 420 m
Hitaveitulagnir DN20-DN100.... 1.150 m
Ljósastaurar................................ 13 stk
Fjarskiptalagnir............................... 850m2
Útboðsgögn verða afhent rafrænt með tölvupósti. Senda skal ósk um gögn á tölvupóstfangið utbod@verkis.is með nafni fyrirtækis, heimilisfangi og síma frá og með mánudeginum 15. maí, 2023.
Tilboð skulu hafa borist rafrænt á utbod@verkis.is, í síðasta lagi mánudaginn 12. júní 2023, kl. 10.00, sjá nánar í kafla 0.4.3 í útboðs- og verklýsingu. Ath. breyttan útboðsfrest frá fyrri auglýsingu.