Kona óskast til starfa í Ásbyrgi
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar starf í Ásbyrgi, vinnu- og hæfingarstöð fatlaðs fólks í Stykkishólmi.
- Félagsliða- stuðningsfulltrúamenntun eða annað nám og reynsla er nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Ásbyrgi er reyklaus vinnustaður.
- Laun skv. kjarasamningi sveitarfélaganna og viðkomandi stéttarfélags.
- Stundvísi auk samvinnu- og samskiptahæfni eru meðal mikilvægra viðmiða starfa í Ásbyrgi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Eydís Bergmann Eyþórsdóttir, forstöðumaður í síma 430 7810 og 891 8297; eydis@fssf.is
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði og nöfnum 1- 2ja umsagnaraðila berist til Jóns Hauks Hilmarssonar, fagstjóra málefna fatlaðs fólks hjá FSS, Ólafsbraut 62-64, 355 Ólafsvík eða á netfangið jonhaukur@fssf.isUmsóknareyðublöð má fá á heimasíðunni www.fssf.is
Þar sem hallar á jöfnun kynjahlutfalls í starfsliði Ásbyrgis eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið!
Umsóknarfrestur er til 30. október 2023