Laust starf félagsráðgjafa hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Staðan er laus frá og með 1. nóvember 2018 eða eftir samkomulagi.
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (FSS) annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, Snæfellsbæjar, Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar og Eyja-og Miklaholtshrepps.
Í sveitarfélögunum búa tæplega 3.900 íbúar.
Hjá FSS starfa auk forstöðumanns, skólasálfræðingur, tveir félagsráðgjafar, tveir þroskaþjálfar, náms- og starfsráðgjafi, talmeinafræðingur auk starfsfólks dagþjónustu- og hæfingarstöðva og stoðþjónustu sveitarfélaganna.
Umsækjandi skal hafa starfsréttindi félagsráðgjafa.
Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar félags- og skólaþjónustu, barnaverndar og stoðþjónustu sveitarfélaga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélag Íslands.
Skrifleg umsókn tilgreini menntun, starfsferil, 1-2 umsagnaraðila ásamt prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði berist Sveini Þór Elinbergssyni, forstöðumanni sem jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 430-7800, 861-7802 og tölvupósti sveinn@fssf.is
Umsóknarfrestur er til 12. október