Lausar stöður við Leikskólann í Stykkishólmi
Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar eftirfarandi tvær 100% stöður leikskólakennara aðra frá 1. nóvember 2022 hina frá 1. janúar 2023.
Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg og viðkomandi þarf að geta unnið undir miklu álagi.
Í leikskólanum er vinnuvikan nú 38 klukkustundir fyrir 100% starf.
Athugið að starfið hentar öllum kynjum.
Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á íbúagáttinni á vef bæjarins www.stykkisholmur.is
Umsóknarfrestur er til 18. október 2022. Öllum umsóknum verður svarað.