Fara í efni

Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi

15.04.2020
Fréttir
Grunnskólinn í Stykkishólmi auglýsir eftirfarandi stöður lausar:
 
Stöður kennara frá 1. ágúst 2020:
 
100% tímabundin staða umsjónarkennara á yngsta stigi
100% tímabundin staða umsjónarkennara á miðstigi
100% tímabundin staða íþróttakennara
50% tímabundin staða dönskukennara á mið- og unglingastigi
80 - 100% ótímabundin staða á unglingastigi (stærðfræði, náttúrufræði, valgreinar)
70% ótímabundin staða íslenskukennara á unglingastigi
50% tímabundin staða forfallakennara
 
Menntunar- og hæfniskröfur
? Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari
? Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
? Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði
? Faglegur metnaður
? Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
? Góðir samskiptahæfileikar
 
Tvær 50% ótímabundnar stöður stuðningsfulltrúa frá 15. ágúst - vinnutími frá kl. 8 ? 12
Hæfniskröfur:
? Aldurstakmark 20 ára
? Áhugi á að vinna með börnum
? Menntun sem nýtist í starfi
? Krafist er íslenskukunnáttu
? Hæfni í mannlegum samskiptum
? Tölvulæsi
 
Ein til tvær 50% ótímabundnar stöður skólaliða í Regnbogalandi frá 15. ágúst - vinnutími frá kl. 12-16
Hæfniskröfur:
? Aldurstakmark 20 ára
? Áhugi á að vinna með börnum
? Menntun sem nýtist í starfi
? Krafist er íslenskukunnáttu
? Hæfni í mannlegum samskiptum
? Tölvulæsi
 
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og þar er starfað eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda.

 

Láttu Hólminn heilla þig

Stykkishólmsbær er staðsettur á norðanverðu Snæfellsnesi og gjarnan kallaður ?bærinn við eyjarnar?. Í bænum búa ríflega 1200 manns, þar er öflugt íþróttastarf, blómlegt mannlíf, rík lista- og matarmenning og náttúrufegurð allt um kring. Stykkishólmur hefur á síðustu árum orðið að einum vinsælasta áfanga- og áningarstað landsins.
 
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness.Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.
 
Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.
 
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2020
Getum við bætt efni síðunnar?