Fara í efni

Lausar stöður í Grunnskólanum í Stykkishólmi

28.05.2024
Fréttir Laus störf

Grunnskólinn í Stykkishólmi leitar eftir góðu fólki til að sinna eftirfarandi verkefnum á næsta skólaári:

  • Umsjónarkennsla á yngsta- eða miðstigi
  • Íþróttakennsla
  • Kennsla í myndmennt, nýsköpun og hönnun
  • Umsjón með Regnbogalandi, lengdri viðveru fyrir börn í 1.-3. bekk

Hæfniskröfur

  • Uppeldismenntun
  • Jákvætt hugarfar
  • Lipurð í samskiptum
  • Góð tölvufærni
  • Reynsla af teymisvinnu

Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Grunnskólinn í Stykkishólmi er lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Í skólanum starfa u.þ.b. 180 börn og 50 fullorðnir. Einkunnarorð skólans eru Gleði – samvinna – sjálfstæði.

Umsóknir skulu sendar á heimireyv@stykk.is.

Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Heimir Eyvindsson skólastjóri í síma 433-8178 eða í tölvupósti, heimireyv@stykk.is.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2024

ATH. Stöðuhlutföll eru umsemjanleg, en miðað er við 70-100%.

Grunnskólinn í Stykkishólmi
Getum við bætt efni síðunnar?