Fara í efni

Laus störf í Ásbyrgi, Stykkishólmi

07.05.2019
Fréttir
Forstöðumaður 1 stöðugildi
· Leitað er einstaklings er hafi þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun ellegar sambærilega menntun og reynslu er nýtist í starfinu; hafi góða samvinnu-og samskiptahæfileika og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu og til að leiða markvert þjónustuhlutverk Ásbyrgis.
Starfsmaður 2 stöðugildi
· Leitað er einstaklinga sem hafa lokið og eða eru í starfstengdu námi félagsliða eða stuðningfulltrúa eða sambærilegu námi og reynslu er nýtist í starfi; hafi góða samvinnu- og samskiptahæfileika og áhuga fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Skriflegar umsóknir um störf þessi er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila ásamt prófskírteini og sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2019

Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær; sveinn@fssf.is
Getum við bætt efni síðunnar?