Fara í efni

Laus staða við Grunnskólann í Stykkishólmi

23.10.2020
Fréttir

Auglýst er laus til umsóknar 50% tímabundin staða forfallakennara.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari 
  • Viðbótarmenntun er kostur
  • Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
  • Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði, framtakssemi og sjálfstæði 
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu

Það er kostur að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og treysti sér til að kenna sem flest fög á sem flestum stigum.

Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ?Bærinn við eyjarnar? er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.

Láttu Hólminn heilla þig

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. 

Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.

Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.

Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2020

Getum við bætt efni síðunnar?