Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa 100% stöðu leikskólakennara.
Staðan er laus 1. október eða fyrr.
Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla og menntun af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg og viðkomandi þarf að geta unnið undir miklu álagi.
Betri vinnutími hefur verið innleiddur að fullu í leikskólanum.
Athugið að starfið hentar öllum kynjum eldri en 18 ára.
Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535. Kjörorð leikskólans eru virðing, gleði og kærleikur.
Hægt er að sækja um starfið á íbúagátt Stykkishólms.
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst 2024.
Öllum umsóknum verður svarað.