Fara í efni

Landvarðarnámskeið 2019

11.01.2019
Fréttir

Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður haldið í febrúar 2019.  Kristín Ósk Jónasdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þáttum námskeiðsins.  Námskeiðið spannar 110 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur. Það hefst 31. janúar og lýkur 24. febrúar  Nemendur sem ljúka landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og öðrum friðlýstum svæðum. Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu en kennarar koma jafnframt frá öðrum þjóðgörðum, Minjastofnun og víðar að.

Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Kristín Ósk Jónasdóttir í síma 591 2000 eða á netfanginu kristinosk@ust.is  Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á þar til gerðu eyðublaði á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Hámarksfjöldi nemenda á landvarðarnámskeiði eru 32. Skráð er á námskeiðið eftir röð umsókna. Lágmarksfjöldi nemenda er 25 og fellur námskeiðið niður ef tilskilinn fjöldi næst ekki. Skráningafrestur er til  15. janúar 2019. 

Megin umfjöllunarefni námskeiðsins er:

  • Landverðir, helstu störf
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
  • Náttúruvernd, verkfærin okkar
  • Vinnustaður landvarða
  • Öryggisfræðsla

Sjá nánar á vef umhverfisstofnunar: https://www.ust.is/2019/01/02/Landvardarnamskeid-2019-/einstaklingar/frettir/frett

Getum við bætt efni síðunnar?