Landsátak í sundi í nóvember
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2024.
Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Á síðasta ári syntu þátttakendur samtals 26.862,93 km, eða rúmlega 20 hringi í kringum landið.
Syndum - Landsátak í sundi, er framhald af Íþróttaviku Evrópu og styrkt af Evrópusambandinu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman. Hólmarar eru hvattir til að nýta þá góðu aðstöðu sem hér stendur til boða og taka þátt í átakinu.
Syndum saman í kringum Ísland
Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is
Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.
Afhvejru að synda?
Hér að neðan má finna nokkrar góðar ástæður fyrir því að iðka sund.
- Eykur liðleika – Sund er mjúk hreyfing sem setur lítið álag á bein og liðamót. Í sundlaugum hér á landi þar sem vatnið er tiltölulega heitt þá ná vöðvarnir góðri slökun sem hjálpar þér að teygja á mikilvægum vöðvum. Ef þú ert mikið fyrir það að hlaupa eða hjóla þá er sund tilvalin íþrótt til að slaka á eftir erfiða æfingu og hjálpa þér að hreinsa líkamann og losa um stífleika.
- Brennsla – Klukkustundar sund á rólegu tempói brennir allt að 500 kcal. Sund eykur grunnbrennsluna og heldur áfram að brenna eftir æfingar.
- Bætir vöðvasamræmi – Þegar þú syndir þá notar þú yfir 2/3 vöðva líkamans í það að koma þér áfram. Þú notar hendur, fætur, búkinn og höfuð og þarft að láta alla þessa vöðva vinna saman til þess að finna hið fullkomna jafnvægi til þess að njóta sundsins.
- Bætir líkamsstöðuna – Sund styrkir liðamót og bætir líkamsstöðuna með því að rétta úr hryggjasúlunni. Sund er því tilvalið fyrir fólk sem er með alls kyns bakvandamál.
- Sund er fyrir alla – Börn og eldri borgarar geta nýtt sér sund til hreyfinga. Um leið og þú kemur ofan í vatnið þá verður líkaminn þinn léttur, mjúkur og það skiptir ekki máli hversu gamall eða gömul þú ert, líkamanum líður vel í vatni og þú í kjölfarið finnur til slökunar. Hversu gott væri að ná þeirri tilfinningu á hverjum degi?
- Fullkomin líkamsrækt – Sund er tilvalin íþrótt til þess að móta líkamann. Þú þarft ekki á þungum lóðum að halda, þú þarft ekki að kaupa rándýran íþróttafatnað. Eina sem þarf er líkaminn, sundfatnaður og sundlaugin.
- Fullkomin þolíþrótt – Sund er talin ein fullkomnasta loftháða íþrótt sem til er. Ólíkt hlaupum þá þarftu að stjórna öndun þinni mun meira í sundi sem kallar á meira súrefni til vöðvana, lætur þá vinna meira fyrir súrefninu án þess að þú takir eftir því. Sund styrkir einnig hjartavöðvann, stækkar hann og gæðin í hverri pumpu verða betri sem leiðir til betri blóðrásar.
- Alla ævi – Sund er íþrótt sem þú þarft aldrei að segja skilið við. Sund er íþrótt sem er til staðar fyrir þig alla ævi og þú getur stundað hana á hverjum degi.
- Endurhæfing – Ertu að jafna þig eftir meiðsli, slæm/ur í hnjám og þarft hvíld frá sífelldum höggum frá gangstéttinni? Sund er tilvalið til að viðhalda úthaldi og styrk. Með góðri þjálfun 3x í viku getur þú viðhaldið úthaldi og styrk í allt að 8 vikur á meðan þú jafnar þig af meiðslum.
- Minnkar stress – Í sífellt hraðari heimi verður fólk stöðugt meira stressað. Það er margsannað að sund getur bætt skapið og minnkað stress hjá fólki. Það að skella sér í laugina fyrir eða eftir langan vinnudag dregur úr stressi og þú nærð fullkominni slökun á líkama og sál.