Fara í efni

Landsæfing björgunarsveita á Snæfellsnesi

30.09.2019
Fréttir

Laugardaginn5. október n.k. verður landsæfing björgunarsveita SlysavarnafélagsinsLandsbjargar haldin í Snæfellsbæ. Svæðisstjórn á svæði 5 og fulltrúarbjörgunarsveitanna á Snæfellsnesi og í Dölum  bera hitann og þungan afundirbúningi og framkvæmd æfingarinnar. Leitað hefur verið eftir aðstoðslysavarnadeildanna á svæðinu, líkt og gerist þegar útköll verða. 

Gerter ráð fyrir um 300 þátttakendum víðs vegar að af landinu auk þess sem nokkrirfélagar okkar frá Færeyjum og Noregi hafa sýnt áhuga fyrir þátttöku.Æfingasvæðið verður afmarkað frá Fróðárheiði og út fyrir Saxhól og verðaæfingar með fjölbreyttu sniði. Æfingapóstar (verkefni) verða 60-70 talsins ogmá þar nefna fjalla- og rústabjörgun, leitarverkefni, fyrsta hjálp, báta- ogtækjaverkefni. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með æfingunni, en vinsamlegastvirðið æfinga- og athafnasvæði þátttakenda (björgunarsveitanna). 

Æfinginhefst kl. 9:00 og lýkur með sameiginlegum kvöldverði í Félagsheimilinu Klifi,þar sem slysavarnadeildirnar á svæði 5 sjá til þess að allir fari saddir ogsælir af svæðinu.

Björgunarsveitirnarí landinu eru reknar með vinnuframlagi sjálfboðaliða. Eins og allir vita reiðalandsmenn sig á óeigingjarnt starf þeirra þegar kemur að því að leita aðstoðaraf ýmsu tagi. Rekstur björgunarsveitanna er háður styrkjum og fjárframlögum fráfyrirtækjum og einstaklingum, sala á neyðarkallinum í nóvember er hluti affjáröflunarleiðum.

Verkefnisem þetta mannfrekt, bæði í undirbúningi og framkvæmd og þar eru sjálfboðaliðarí öllum hlutverkum. Til þess að æfingarnar gangi sem best og verði semtrúverðugastar þarf verkefnastjóra við hvert verkefni og í mörgum tilfellum?sjúkling/sjúklinga?. Smærri æfingar verða endurteknar nokkrum sinnum yfirdaginn og á sumum æfingasvæðum verða mörg verkefni í gangi. Því biðlum við tilallra þeirra sem hafa reynslu eða þekkingu sem gæti nýst við verkefnastjórn ogeinnig þeirra sem eru tilbúnir til að leika sjúklinga að hafa samband viðJóhönnu Maríu í síma 8654548 eða Ægi í síma 8485256. Öll aðstoð er vel þegin ogþátttaka í verkefni sem þessu er í flestum tilfellum mjög gefandi. Gætt verðurað öryggi sjúklinga, engin áhættuatriði í boði!

F.h.undirbúningshópsins

V.Lilja Stefánsdóttir


Getum við bætt efni síðunnar?