Fara í efni

Læstar dyr St.Franciskusspítala vegna Covid-19

07.04.2020
Fréttir
Allir inngangar St.Franciskusspítala, HVE Stykkishólmi eru nú læstir. Þeir sem eiga pantaðan tíma eru beðnir um að hringja bjöllu í anddyri spítalans og gefa upp erindið.
Þetta á við um tíma hjá heilsugæslulækni, hjúkrunarfræðingi á heilsugæslu, sjúkraþjálfun, blóðprufur, ungbarnaeftirlit (einn fylgdarmaður leyfður) og fleira.
 
Ekki eru leyfðar heimsóknir á sjúkradeild.
 
Þeir sem telja sig þurfa þjónustu læknis er bent á að hringja í síma 4321200 og eftir kl. 16:00 í síma 1700.
--- 
All doors at the hospital in Stykkisholmur are now locked due to Covid-19.
People are asked to ring the bell in the hall if they have a scheduled appointment. If you need a doctor please call 4321200 or 1700 after 16:00 pm.
Getum við bætt efni síðunnar?