Fara í efni

Kynning á samþykkt um kattahald og gæludýrahald annað en hundahald í Stykkishólmi

20.04.2020
Fréttir
Vakin er athygli á því að kattahald í Stykkishólmsbæ er háð leyfi bæjarstjórnar og bundið þeim skilyrðum sem tilgreind eru í samþykkt um kattahald og gæludýrahald annað en hundahald í Stykkishólmi nr. 390/2020.
 
Samþykktin var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 8.apríl sl. og tók þar með gildi.
 
Eigendur katta og annara gæludýra eru hvattir til að kynna sér samþykktina vel og skrá gæludýrin sín sem fyrst. Hægt er að skrá dýrin á íbúagátt Stykkishólmsbæjar.
 
Skráningarskylda
Allir kettir í þéttbýli eru skráningarskyldir. Kattahald í dreifbýli sætir að öllu jöfnu ekki takmörkunum.
 
Skylt er að sækja um skráningu kattar í þéttbýli sveitarfélagsins innan tveggja vikna frá því að köttur er tekinn inn á heimili. Kettlinga skal skrá eigi síðar en þegar þeir ná þriggja mánaða aldri.
 
Kettir sem sótt er um skráningu fyrir skulu merktir samkvæmt reglugerð nr. 80/2016, um velferð gæludýra, og skal númer merkis skráð við skráningu kattar. Ketti skal skrá á nafn og heimili lögráða einstaklings sem hefur lögheimili í sveitarfélaginu og skal kötturinn haldinn á heimili eigandans. Útgefið leyfi er óframseljanlegt. Óheimilt er að skrá fleiri en tvo ketti á hvert heimili.
 
Við skráningu kattar getur sveitarfélagið leitað umsagnar lögreglu og annarra heilbrigðiseftirlitssvæða telji það ástæðu til.
  
Eftirfarandi gögn skal leggja fram við skráningu kattar
  • Undirritaða umsókn á umsóknareyðublöðum sem má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðu.
    Upplýsingar um heiti, fæðingardag, kyn, tegund og önnur einkenni kattar.
  • Mynd af kettinum
  • Vottorð frá dýralækni um einstaklingsmerkingu kattar, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra.
  • Staðfestingu frá viðurkenndu tryggingafyrirtæki um að umsækjandi hafi gilda ábyrgðartryggingu sem nær til alls þess tjóns sem kötturinn kann að valda mönnum, dýrum, gróðri og munum sé sveitarfélagið ekki með hóptryggingu innifalda í skráningargjaldi.
  • Samþykki tilskilins hluta íbúðareigenda í fjöleignarhúsi sem veitt er áður en kötturinn er tekinn inn á heimili í fjöleignarhúsi, sbr. ákvæði laga nr. 26/1994, um fjöleignarhús.
  • Skilyrði fyrir skráningu kattar er að gögn hafi verið lögð fram af hálfu umsækjanda og skráningargjald greitt samkvæmt gjaldskrá sem sveitarfélagið hefur sett.
     
    Í kjölfar skráningar ber sveitarfélaginu að afhenda forráðamanni kattar leyfisskírteini sem staðfestingu á að köttur hans hafi verið skráður til heimilis í sveitarfélaginu.
     
    Skyldur eftirlitsaðila
    Dýraeftirlitsmaður sveitarfélagsins skal halda og uppfæra skrá yfir ketti í sveitarfélaginu. Í skránni skulu koma fram allar upplýsingar er varða skráða ketti og sem dýraeftirlitsmaður telur skipta máli.
    Heilbrigðiseftirlit Vestfjarðasvæðis, lögregla og eftir atvikum starfsmenn sveitarfélagsins skulu tilkynna dýraeftirlitsmanni um kvartanir eða afskipti þeirra af köttum í sveitarfélaginu.
     
    Skyldur eigenda og umráðamanna katta
    Skráðum eiganda kattar ber að sjá til þess að umhirða kattarins sé í samræmi við ákvæði laga nr. 55/2013, um velferð dýra.
     
    Kattaeigendum er skylt að ábyrgðartryggja sig gegn tjóni sem kettir þeirra kunna að valda mönnum, dýrum, gróðri og munum.
     
    Eigendur katta skulu árlega greiða skráningargjald fyrir ketti þeirra samkvæmt gjaldskrá sem sveitarfélagið setur í samræmi við ákvæði 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.
     
    Auk einstaklingsmerkingar skulu kettir bera hálsól með upplýsingum um heimilisfang eiganda og símanúmer.
     
    Kattaeigendum ber að sjá til þess að högnar séu geltir og að læður séu gerðar ófrjóar eða hafðar á getnaðarvarnapillu.
     
    Eigendum og umráðamönnum katta ber, eftir því sem framast er unnt, að sjá svo um að kettir þeirra v aldi ekki hávaða, ónæði, óþrifnaði eða óhollustu.
     
    Ef köttur veldur nágrönnum eða öðrum ítrekuðu ónæði, óþrifum eða tjóni, þá ber eiganda eða umráðamanni að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt.
     
    Kattaeigendum og umráðamönnum ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, eftir því sem tök eru á, m.a. með því að hengja bjöllur á hálsólar katta og halda þeim innandyra á nóttunni.
     
    Föngun katta
    Sveitarstjórn er heimilt að láta fanga ketti í búr í eftirfarandi tilfellum:
    ? ef köttur er ómerktur, hvort sem er án hálsólar og/eða örmerkis
    ? ef ítrekað er kvartað undan ágangi katta á tilteknu svæði eða
    ? ef köttur finnst innandyra hjá nágranna í leyfisleysi, á öðrum óheimilum stað eða í fjöleignarhúsi þar sem á skortir tilskilið samþykki annarra íbúðareigenda.
     
    Aðgerðir gegn hálfvilltum köttum
    Meiriháttar föngun hálfvilltra katta í þéttbýliskjörnum skal auglýsa með a.m.k. viku fyrirvara og með tilmælum um að skráðum köttum sé haldið innan dyra.
     
    Eftir tvo sólarhringa frá handsömun er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa hálfvilltum ketti til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta.
     
    Gæludýr önnur en kettir og hundar
    Eigendum og umráðamönnum gæludýra annarra en hunda og katta er skylt að koma í veg fyrir að dýr þeirra sleppi úr haldi. Gerist það skal þegar gera ráðstafanir til að handsama dýrið.
     
    Eigendur og umráðamenn gæludýra sem haldin eru utandyra, t.d. kanína eða annarra nagdýra, skulu sjá til þess að dýrin valdi ekki nágrönnum ama svo sem með hávaða eða óhreinindum. Skulu þeir tryggja að dýrin geti ekki nagað sig út úr búri eða aðhaldi.
     
    Kanínur skulu einstaklingsmerktar skv. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 55/2013, um velferð dýra.
     
    Gjaldtaka
    Sveitarstjórn er heimilt að innheimta skráningar- og eftirlitsgjöld í samræmi við gjaldskrá sem sveitarfélagið setur skv. 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, og að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar. Sveitarstjórn skal láta birta gjaldskrána í B-deild Stjórnartíðinda.
     
    Skráningargjald skal í fyrsta sinn greitt við skráningu kattar og síðan árlega fyrirfram. Skráningargjaldi er ætlað að standa undir kostnaði sveitarfélagsins við kattahald og framkvæmd samþykktar þessarar.
     
    Sveitarfélaginu er heimilt að afturkalla skráningu katta ef vanhöld verða á tryggingum, greiðslu skráningargjalds sem og ef skráður eigandi hefur brotið gegn samþykkt þessari. Einnig er heimilt að afturkalla allar skráningar telji sveitarfélagið það nauðsynlegt í þágu hollustuhátta og öryggis. Jafnframt getur sveitarfélagið, telji það og héraðsdýralæknir brýna þörf á, af sömu ástæðu bannað eða takmarkað gæludýrahald í dreifbýli.
     
    Ákvæði til bráðabirgða
    Eigendur sem halda ketti við gildistöku samþykktarinnar skulu skrá þá innan sex mánaða frá gildistöku. Sú skráning er gjaldfrjáls í sex mánuði frá gildistöku samþykktarinnar fyrir þá sem eiga ketti þegar samþykktin tekur gildi.
     
    Þeir sem halda fleiri ketti en tvo hafa leyfi til að halda þá á heimili sínu á meðan kettirnir lifa, enda hafa þeir skráð kettina í samræmi við 1. mgr. og voru á heimilinu þegar samþykkt nr. 1063/2004 tók gildi.

     

     Samþykkt um kattahald og gæludýrahald annað en hundahald má lesa í heild sinni hér.

    Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Stykkishólmsbæ má lesa hér.

    Hægt er að sækja um leyfi fyrir dýrahaldi hér á íbúagátt Stykkishólmsbæjar

    Getum við bætt efni síðunnar?