Fara í efni

Kynning á Áfangastaðaáætlun Vesturlands

12.11.2020
Fréttir

Nú stendur yfir vinna við aðgerðaáætlun Áfangastaðaáætlunnar Vesturlands 2021 - 2023.

Af því tilefni verður rafræn netkynning á verkefninu þar sem Áfangastaðaáætlun Vesturlands er kynnt. Kynningin verður í dag, miðvikudaginn 12. nóvember,  milli 16:30 ? 17:30 á síðu SSV á Facebook.  Sagt verður frá þeim verkefnum sem unnið hefur verið að síðastliðin ár samkvæmt aðgerðaráætlun Áfangastaðaáætlunar Vesturlands 2018 -2020.

Í kjölfar fjarkynningarinnar verður opnað fyrir leiðbeinandi kosningu þar sem íbúar geta gefið leiðbeinandi álit á forgangsröðun verkefna varðandi uppbyggingu innviða á sínu svæði innan Vesturlands. Með þessu móti geta íbúar Vesturlands tekið virkan þátt í að móta verkefnaáætlun næstu þriggja ára.  Hægt verður að nálgast þá kosingu á vef SSV að lokinni fjarkynningunni og nánari upplýsingar um það munu koma fram í fjarkynningunni.
Vefslóð viðburðarins á Facebook má nálgast hér

Getum við bætt efni síðunnar?