Krabbameinsfélag Snæfellsness býður til samveru
Krabbameinsfélag Snæfellsness býður til samveru og viðburðar miðvikudaginn 23. október kl. 20:00 í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði.
Dagskrá:
- Stutt lýsing á starfsemi og viðburðum framundan hjá félaginu
- Guðrún Hrönn Hjartardóttir verður með frásögn sem aðstandandi
- Mæðginin Pétur Steinar Jóhannsson og Júlíana Björg Óttarsdóttir segja frá reynslu sinni af krabbameini
- Móttaka styrks og þakklætisafhendingar
- Opið spjall við stjórnfólk ásamt kaffi og meðlæti
Spjall, kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.