Fara í efni

KK í Vatnasafninu

22.11.2022
Fréttir

TÓNLEIKUNUM HEFUR VERIÐ FRESTAÐ AF ÓVIÐRÁÐANLEGUM ÁSTÆÐUM.

Föstudagskvöldið 25. nóvember mætir KK í Hólminn og spilar öll sín bestu lög í Vatnasafninu.

Ókeypis aðgangur er að tónleikunum en fjöldi gesta takmarkast við 70. Vegna takmarkaðs sætafjölda er nauðsynlegt að panta á tónleikana.
Pöntun fer fram á netfanginu vatnasafn@gmail.com.

Húsið opnar kl. 19:30 en tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:00.

Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Vesturlands og Stykkishólmsbæ.

Hver man ekki eftir lögum eins og Vegbúin, Lucky one, Kærleikur og tími, Þjóðvegur 66 og Bein leið?
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að sjá og heyra í KK í mikilli nánd.

KK
Getum við bætt efni síðunnar?