Fara í efni

Kjördæmavika stendur nú yfir

25.02.2025
Fréttir

Kjördæmavika stendur nú yfir og eru því engir þingfundir á Alþingi þessa vikuna. Kjördæmavikuna nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri.

Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, átti í gær fund með sveitarstjórnarfólki í Stykkishólmi.

Í kvöld, þriðjudaginn 25. febrúar, verða þau María Rut Kristinsdóttir og Sigmar Guðmundsson, þingmenn Viðreisnar, með opinn fund á Fosshótel Stykkishólmi kl. 19:30.

Þá verða þau Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður Flokks fólksins, verða með opinn fund á Höfðaborg, fimmtudaginn 27. febrúar, kl. 13:00.

Getum við bætt efni síðunnar?