Fara í efni

Jólin koma

27.11.2019
Fréttir

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar vinna nú í óða önn að því að skreyta bæinn fyrir jólin. Á meðfylgjandi mynd má sjá nafnana Jón Beck og Jón Pál vinna hörðum höndum að því að festa jólaskreytingar á ljósastaura bæjarins, með dyggri aðstoð Stefáns Björgvinssonar, en skrautið á staurunum er fyrir löngu orðið ómissandi í jólahaldi Hólmara. Að lokinni vinnu við skreytingar á ljósastaurum tekur við uppsetning og skreyting á jólatrénu í Hólmgarði, en þar verða jólaljósin tendruð við hátíðlega athöfn kl. 18:00 næstkomandi mánudag, 2. desember.

Getum við bætt efni síðunnar?