Fara í efni

Íbúum Vesturlands boðið til samráðs um samgöngur, sveitarstjórnarmál og húsnæðis- og skipulagsmál

19.10.2022
Fréttir

Í október býður innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Fundur fyrir íbúa Vesturlands verður haldinn miðvikudaginn 26. október kl. 15-17.

Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.

Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum og eru íbúar hvattir til þátttöku. Fundurinn er haldinn í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams og er krafist skráningar á fundinn. Skráningu lýkur daginn fyrir fund og þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengjast fundinum.

Fundardagar:

  • 10. október – Höfuðborgarsvæðið
  • 11. október – Suðurland
  • 18. október – Austurland
  • 19. október – Norðurland eystra
  • 20. október – Norðurland vestra
  • 24. október – Vestfirðir
  • 26. október – Vesturland
  • 27. október – Suðurnes
Samráðsfundur verður miðvikudaginn 26. október kl. 15:00
Getum við bætt efni síðunnar?