Fara í efni

Íbúðarlóðir í Stykkishólmi auglýstar til úthlutunar

17.04.2020
Fréttir

Eftirfarandi lóðum hefur verið skilað aftur inn til Stykkishólmsbæjar og eru því auglýstar til úthlutunar og bætast við á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi á ný.

  • Hjallatangi 48 
  • Hjallatangi 9         (50% afsláttur af gatnagerðargjöldum)
  • Laufásvegur 19    (50% afsláttur af gatnagerðargjöldum)

Umsóknarfrestur er 10 dagar fá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði í Stykkishólmsbæ.  

Nánari upplýsingar má finna á vef Stykkishólmbæjar og þá veitir skipulags- og byggingarfulltrúi, netfang skipulag@stykkisholmur.is, eða bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, allar nánari upplýsingar í síma 433-8100 eða í Ráðhúsi Stykkishólmsbæjar. 

Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og skráðar eru á úthlutunarlista Stykkishólmbæjar sem finna má hér.

Getum við bætt efni síðunnar?