Fara í efni

Hrekkjavaka í Hólminum

28.10.2024
Fréttir

Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi stendur fyrir hrekkjavökugöngu í kvöld, mánudaginn 28. október. 

Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er stytting á All Hallows’ Evening sem er kvöldið 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu. Allraheilagramessa er er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar og er haldin 1. nóvember víðsvegar um heim. Hátíðin fer sífellt vaxandi hér á landi en á hrekkjavöku er hefð fyrir því að börn klæði sig upp í búninga og gangi í hús í leit að sælgæti.

Hólmarar þjófstarta gleðinni þetta árið með hrekkjavökugöngu mánudaginn 28. október. Fjölskyldur og vinir eru hvattir til að ganga í hús á eigin forsendum milli kl. 17:30 og 19:30 þar sem börn safna sér sælgæti, eins og þekkt er. Gengið verður út frá þeirri reglu að banka megi uppá þar sem hús hafa verið merkt eða skreytt við eða á hurðina með skýrum hætti í tilefni Hrekkjavökunnar.

Hólmarar eru hvattir til að skreyta húsin sín og taka þátt í gleðinni.

Grikk eða gott?
Getum við bætt efni síðunnar?