Helstu fréttir komnar út
Á vefsíðu sveitarfélagsins Stykkishólms má lesa helstu fréttir sem snúa að rekstri sveitarfélagsins, viðburðum og öðru tengdu sveitarfélaginu. Fréttunum er svo deilt á facebooksíðu Stykkishólms til að ná athygli sem flestra. Fréttaritið Helstu fréttir er samantekt af því sem hæst ber í fréttum frá sveitarfélaginu. Blaðinu er ætlað að bæta upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu og ná til þeirra sem ekki nota tölvur, sér í lagi eldra fólks. Blaðið liggur því frammi á Miðstöð öldrunarþjónustu, Skólastíg 14 Stykkishólmi. Áhugasömum er bent á að næla sér í eintak þar.
Sjöunda tölublað kom út í dag, 2. nóvember. Rafræn útgáfa blaðsins er öllum aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins en hana má nálgast hér að neðan.
Smelltu á hnappinn hér að neðan til að lesa rafræna útgáfu blaðsins.