Fara í efni

Helstu fréttir komnar út

02.05.2023
Fréttir

Á vefsíðu sveitarfélagsins Stykkishólms má lesa helstu fréttir sem snúa að rekstri sveitarfélagsins, viðburðum og öðru tengdu sveitarfélaginu. Fréttunum er svo deilt á facebooksíðu Stykkishólms til að ná athygli sem flestra. Í byrjun aprílmánaðar kom fréttaritið Helstu fréttir út í fyrsta sinn. Blaðinu er ætlað að bæta upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu og ná til þeirra sem ekki nota tölvur. Stór hluti markhópsins eru eldri borgarar, blaðið liggur því frammi á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi auk þess sem Aftanskin dreifir því til sinna félaga. Einnig má nálgast blaðið í Ráðhúsinu í Stykkishólmi.

Annað tölublað kom út í dag, 2. maí. Rafræn útgáfa blaðsins er öllum aðgengileg á vefsíðu sveitarfélagsins. Auk þess gefst þeim sem kjósa kostur á því að fá blaðið sent heim en sú þjónusta afmarkast þó við íbúa í sveitarfélaginu. Hægt er að panta áskrift af blaðinu hér að neðan. Þeir sem panta áskrift fá næsta tölublað sent heim.

Smelltu á hnappinn hér að neðan til að lesa rafræna útgáfu blaðsins.

Helstu fréttir

Smelltu á hnappinn hér að neðan til að panta áskrift af blaðinu.

Panta áskrift

Kvöldsólin í Stykkishólmi 1. maí 2023
Getum við bætt efni síðunnar?