Fara í efni

Heimsóknarbann á Dvarlaheimili aldraðra í Stykkishólmi og í búseturéttaríbúðir við Skólastíg

08.03.2020
Fréttir

Tekið hefur verið fyrir heimsóknir á Dvarlaheimili aldraðra í Stykkishólmi og í búseturéttaríbúðir (þjónustuíbúðir) við Skólastíg 14, 14a og 16 til að draga úr þeirri hættu að íbúar hjúkrunarheimilisins veikist af Kórónaveirunni (COVID-19).

Lokað verður fyrir heimsóknir á meðan neyðarstig Almannavarna er í gildi og mögulega lengur.

Ættingjum og vinum er bent á að hafa samband símleiðis sé óskað eftir að komast í samband við íbúa. 

Sjá nánar í tilkynningu hér fyrir neðan:

 

Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja og starfsfólks
Dvalarheimilis aðdraðra Stykkishólmi
og íbúa og ættingja í búseturéttaríbúðum
vegna sýkingar af völdum Kórónaveirunnar (COVID-19) á Íslandi

Forsöðumaður Dvalarheimlis aldraðra í Stykkishólmi hefur tekið þá ákvörðun að loka hjúkrunarheimilinu fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 6. mars 2020 þar til annað verður formlega tilkynnt. Er þetta gert að höfðu samráði við Sóttvarnarlækni og Landlækni eftir að Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir fyrr á föstudag. Dvalarheimili aldraðra er hér að fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðasveit Almannavarna Íslands.

Að höfðu samráði forstöðumanns við bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar á lokunin einnig við um búsetturéttaríbúðir við Skólastíg 14, 14a og 16 (stundum nefndar þjónustuíbúðir) til að tryggja öryggi hjúkrunarheimilisins enda er verið að leita allra leiða til þess að draga úr áhættu íbúa hjúkrunarheimilisins. Ættingjum og vinum er bent á að hafa samband símleiðis sé óskað eftir að komast í samband við íbúa.

Heilsa og velferð íbúanna þarf alltaf að vera í forgangi!

Nú er staðfest að smit vegna Kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Dvalarheimilisins eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.

Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar hjúkrunarheimila veikist af Kórónaveirunni.

Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna okkar í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki. Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessarra ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.

Jafnframt verður umferð allra annara gesta en nauðsynlegs starfsfólks á vakt takmörkuð inn á heimilið. Svo sem birgja með vörur, iðnaðarmenn og aðra sem þurfa að koma inn á heimilin.

Varðandi símtöl inn á hjúkrunarheimilið og upplýsingar um líðan heimilisfólks þess þá bendum við á að hægt er að hafa samband við Kristínu Hannesdóttur, forstöðumann, í síma 848-6190.

Einnig er mikilvægt að þið kynnið ykkur upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is Þar eru greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar tengdar stöðu málar, en þær geta breyst frá degi til dags.

 

Getum við bætt efni síðunnar?