Fara í efni

Heilsuefling eldri borgara heldur áfram

03.09.2019
Fréttir

Stykkishólmsbærhefur lagt sitt af mörkum við að styðja við heilsueflingu og stuðla að velferðeldra fólks með því að bjóða þeim íbúum, 60 ára og eldri, upp á fjölþættaheilsurækt. Í fyrra var sett á legg verkefni í samstarfi við GunnhildiGunnarsdóttur og Gísla Pálsson með það að markmiði að koma sem flestum íreglulega hreyfingu til að efla bæði líkamlega og andlega heilsu.

ÖldungarráðStykkishólmsbæjar hafði komið á framfæri vonum um að áframhald yrði á þessugóða starfi nú í haust sem var svo samþykkt á fundi bæjarstjórnar síðastliðinnfimmtudag. Heilsueflingin hefst þriðjudaginn 9. september og  verða hópatímar á þriðjudögum og fimmtudögumkl. 12:30 auk þess verða opnir tímar með þjálfara í Átaki kl. 10:20 ámiðvikudögum og kl. 9:30 á föstudögum.


Getum við bætt efni síðunnar?