Hamraendi 4 laus til úthlutunar
Stykkishólmsbær auglýsir lóð við Hamraenda 4 í Stykkishólmi lausa til úthlutunnar. Svæðið er skilgreint sem athafnarsvæði samkvæmt aðalskipulagi.
Þar sem ekki er til deiliskipulag af svæðinu þarf að fara fram grenndarkynning í samræmi við ákvæði 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á fyrirhugaðri uppbyggingu áður en framkvæmdir hefjast.
Lóðinni er úthlutað samkvæmt úthlutunarreglum Stykkishólmsbæjar sem sjá má hér.
Umsóknarfrestur til að skila inn umsóknum er til og með 23. maí 2022. Berist fleiri en ein umsókn að lokinni auglýsingu, þ.e. 23. maí, og uppfylli þær skilyrði framangreindra úthlutunarreglna Stykkishólmsbæjar skal hlutkesti ráða úthlutun, en eftir þann tíma skal úthluta þeim til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar að uppfylltum skilyrðum reglnanna.
Sækja má um lóðina í íbúagátt Stykkishólmsbæjar ("Umsóknir" -> "Umsókn um lóð")
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í Ráðhúsinu, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða í síma 433-8100 eða á heimasíðu bæjarins, stykkisholmur.is.
Svæðið er sýnt hér fyrir neðan til upplýsinga, en um leiðandi mynd fyrir svæðið er að ræða.