Fara í efni

Guðbjörg Halldórsdóttir fyrsti formaður ungmennaráðs Vesturlands

30.01.2020
Fréttir

Þriðjudaginn 28. janúar var haldinn stofnfundur ungmennaráðs Vesturlands þar sem fulltrúar fimm ungmennaráða komu saman og stofnuðu ráðið. Á fundinum var kosinn formaður Guðbjörg Halldórsdóttir frá ungmennaráði Stykkishólmsbæjar, varaformaður Guðjón Snær Magnússon hjá ungmennaráði Akraneskaupstaðar og ritari Stefanína Bláfeld Viðarsdóttir hjá ungmennaráði Snæfellsbæjar.

Samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 skulu sveitarfélög á landinu hafa starfrækt ungmennaráð. Í Velferðarstefnu Vesturlands kemur jafnframt fram að stofnað skuli vera Ungmennaráð Vesturlands skipað einum fulltrúa frá þeim sveitarfélögum sem hafa skipað ungmennaráð eða fulltrúa ungmenna, auk tveggja fulltrúa æskulýðs- og tómstundarfulltrúa. Þá situr verkefnastjóri velferðarmála hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi í ráðinu en stofnun UV er á ábyrgð SSV. Í tilefni að stofnfundinum hittust æskulýðs- og tómsstundarfulltrúar á Vesturlandi og ræddu ýmis mál, æskulýðsstarfið og forvarnir svo eitthvað sé nefnt. Voru allir sammála um að mörg tækifæri liggja í samstarfi innan málaflokksins á Vesturlandi og leitast var við að hafa fundi fulltrúanna með reglulegu millibili.

Á meðfylgjandi mynd er nýskipað Ungmennaráð Vesturlands. Frá vinstri eru Guðjón Snær Magnússon f.h. Akraneskaupstaðar, Guðbjörg Halldórsdóttir f.h. Stykkishólmsbæjar, Stefanía Bláfeld Viðarsdóttir f.h. Snæfellsbæjar, Tanja Lilja Jósndóttir f.h. Grundarfjarðarbæjar og Bjartur Daði Einarsson f.h. Borgarbyggðar. Auk þeirra sitja Ívar Orri Kristjánsson æskulýðs og tómstundarfulltrúi á Akranesi, Magnús Bæringsson æskulýðs- og tómstundarfulltrúi Stykkishólmsbæjar og Sigursteinn Sigurðsson verkefnastjóri hjá SSV sem starfsmenn ráðsins.

Getum við bætt efni síðunnar?