Fara í efni

Suðutilmæli endurvakin fyrir íbúa í Helgafellssveit

11.12.2024
Fréttir

Íbúum í Helgafellssveit ofan við Stykkishólm ráðlagt að sjóða neysluvatn í varúðarskyni

Íbúum í Helgafellssveit, frá vatnsbólinu í Svelgsárhrauni til og með Gámastöðinni, er ráðlagt að sjóða drykkjarvatn í varúðarskyni vegna vísbendinga um hugsanlega kólígerlamengun frá vatnsbólinu. Sjá viðkomandi svæði nánar á korti.

Vatnið er gegnumlýst áður en það fer inn á Stykkishólm og þar er enga gerlamengun að finna. Suðutilmæli eiga því ekki við um neysluvatn í bænum sjálfum.

Veitur ásamt heilbrigðiseftirliti Vesturlands eru að taka fleiri sýni úr neysluvatninu til að greina það nánar. Fyrstu niðurstöður ættu að liggja fyrir á morgun.

Hvernig á að sjóða vatnið?

Vatnið þarf að bullsjóða, það þýðir að sjóða í a.m.k. 1 mínútu. Hraðsuðukatlar bullsjóða vatn, en ef örbylgjuofn er notaður þarf að tryggja að vatnið sjóði almennilega.

Börn, eldra fólk og fólk með viðkvæmt ónæmiskerfi ættu að fara sérstaklega varlega.

 

Uppfært 12. desember 2024: Fyrstu niðurstöður sýnatöku frá því í gær gefa til kynna að kólígerlar séu í vatninu og því er íbúum áfram ráðlagt að sjóða neysluvatnið. Veðuraðstæður eru óhagstæðar fyrir vatnsbólið, en það er vel fylgst með og meta hvað hægt er að gera í stöðunni.

 
Uppfært 13.12. kl.14.45: Sýni tekin 9. og 11.desember sýndu 1 kólí í 100 mL sýnis teknu í dælustöðinni Hamraendum. Ekki var um E.coli að ræða sem eru góðar fréttir. Fleiri sýni voru tekin í dag uppi við vatnsból og úr aðveituæðinni. Fyrstu niðurstöður úr þeim eru jákvæðar og benda til þess að atburðurinn sé liðinn hjá. Í varúðarskyni vilja Veitur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands þó halda tilmælum óbreyttum þangað til niðurstöður frá Matís liggja fyrir eftir helgi.

 

Uppfært 17. desember 2024: Niðurstöður úr sýnatökum undanfarinna daga benda til þess að sá atburður sem olli því að kólí gerill greindist í sýni úr vatnsveitunni frá Svelgsárhrauni og niður að Stykkishólmi sé liðinn hjá. Um var að ræða áhrif mikillar úrkomu og leysinga. Ekki var um E. coli að ræða.

Samkvæmt neysluvatnsreglugerð skal heilbrigðisnefnd í svona tilfellum meta hvort heilsu manna sé hætta búin. Það er mat Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að svo sé ekki og er suðutilmælum því aflétt. Veitur eru að skoða möguleika til gegnumlýsingar á vatninu sem næst upptökum. Þangað til verður tíðni á sýnatökum aukin til þess að fylgjast betur með vatnsgæðum.

 

Uppfært 17. des, kl. 13:00: Því miður hefur aftur komið upp grunur um kóli/E. coli úr sýni sem tekið var í veitunni í gær. Frekari niðurstaða berst á morgun. Aftur er því mælt með því að fólk sjóði vatn fyrir veitusvæðið frá Svelgsárhrauni og að gámastöðinni. Á þetta sérstaklega við um viðkvæma notendur (börn, eldra fólk og fólk með viðkvæmt ónæmiskerfi).

---------

Residents in Helgafellssveit above Stykkishólmur advised to boil drinking water as a precaution

Residents in Helgafellssveit, from the water source in Svelgsárhraun up to and including the Recycling Station, are advised to boil drinking water as a precaution due to indications of potential coliform contamination from the water source. Map of the affected area.

The water is UV-treated before entering Stykkishólmur itself, where no contamination has been detected. Therefore, the boiling advisory does not apply to drinking water within the town itself.

The utility company, in cooperation with the West Iceland Public Health Authority, is conducting further testing of the drinking water to determine its safety. Initial results are expected tomorrow.

 

How to boil the water
The water must reach a rolling boil, which means boiling for at least 1 minute. Electric kettles achieve a rolling boil, but if using a microwave, ensure the water is boiled thoroughly.

Special caution is advised for children, the elderly, and individuals with weakened immune systems.

Getum við bætt efni síðunnar?