Fara í efni

Frisbígolfvöllur í Stykkishólmi

27.07.2021
Fréttir

Það er óhætt að segja að frisbígolf eða folf hafi komið eins og stormsveipur inn í afþreyingu landsmanna á fáum árum en ekki er langt síðan að enginn hafði heyrt um þessa íþrótt og hvað þá prófað. Síðustu árin hefur orðið algjör sprenging í iðkendafjölda sem nú telur tugi þúsunda á öllum aldri. Ástæðan er sögð einföld; fyrir utan skemmtanagildið þá er þetta ódýr íþrótt sem auðvelt er að ná tökum á þó að það taki kannski mörg ár að ná leikni þeirra bestu. 

Þessa dagana hefur verið unnið að uppsetningu 9 holu frisbígolfvallar í holtinu fyrir ofan íþróttavöllinn og grunnskólann. Fyrsta brautin liggur frá grunnskólanum og er kastað í átt að þjónustuhúsi tjaldsvæðis. Völlurinn rekur sig svo í kringum holtið og upp á það. Völlurinn er ekki aðeins hugsaður sem góð afþreying og hreyfing fyrir heimafólk heldur er frísbígolf einnig vinsælt á meðal ferðafólks. 

Brautirnar eru tilbúnar en uppsetning brautanúmera og leiðarlýsing er í vinnslu. Örvar eru þó í hverri körfu sem vísa á næsta kastreit svo það er um að gera að drífa sig af stað með frisbídiskana og prófa.  

Leikreglur eru mjög einfaldar, folf er spilað líkt og hefðbundið golf nema með frisbídiskum. Köstin sem tekur að koma diskinum í körfuna eru talin og takmarkið er að fara allar brautir í sem fæstum köstum. Fyrsta kast er tekið af merktum teig og er það næsta tekið þar sem diskurinn liggur og þarf sá fótur sem er nær körfu að vera þar sem diskurinn lá. Skipta má um diska á milli kasta. Sá spilari sem lengst er frá körfu tekur fyrsta kast. Tillitssemi er stór hluti af leiknum. Sanngjarnt er að mótspilari þinn fái að kasta án truflunar, það sama myndir þú vilja. Ekki kasta fyrr en þú ert viss um að flug disksins og lending hans trufli ekki hina spilarana. 

Nánari upplýsingar um frísbígolf og staðsetningu valla má finna inn á heimasíðu íslenska frisbígolfsambandsins

Góða skemmtun! 


 

Getum við bætt efni síðunnar?