Fara í efni

Framlengdur skilafrestur tilboða - Útboð vegna framkvæmda við búsetukjarna fyrir íbúa með fötlun

08.05.2020
Fréttir

Verkís hf., fyrir hönd Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir vegna byggingar 5 íbúða, ásamt starfsmannaaðstöðu, búsetuþjónustukjarna fatlaðs fólks við Ólafsbraut 62-64, Ólafsvík
  
Verkið nær til fullnaðarfrágangs alls verksins. Verktaki skal steypa grunn, reisa hús, innrétta, ganga frá utanhúss sem og innan og fullgera húsið samkvæmt útboðsgögnum. 
Nokkrar magntölur:

  • Flatarmál húss:  441 m²  1370 m3
  • Þak og botnplata    357 m3
Verktaki tekur við byggingarsvæði í núverandi ástandi. Búið er að fylla undir undirstöður, fylla í bílastæði og girða athafnarsvæði og setja upp hlið inn á vinnusvæðið. 
Verklok á heildarverki eru 30. ágúst 2021, útboðsgögn verða afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið anmt@verkis.is þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda. 
Tilboðum skal skila rafrænt á netfangið anmt@verkis.is fyrir kl.13.00, 15. maí 2020.

Tilboð verða opnuð á fjarfundi kl. 13.30, sama dag,  15. maí 2020. 
Félags-og skólaþjónusta Snæfellinga og Verkís

Getum við bætt efni síðunnar?