Fara í efni

Framkvæmdir við gatnagerð að Skólastíg hafnar

11.12.2018
Fréttir
Í dag hófust framkvæmdir við fyrri hluta gatnagerðar við Skólastígs fyrir framan Dvalarheimilið, m.a. til að bæta aðkomu að Dvalarheimilinu. Á meðan framkvæmdum stendur verður Skólastígnum lokað fyrir umferð við Dvalarheimilið, en reiknað er með að framkvæmdir standi yfir í nokkra daga. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar. Gert er ráð fyrir að lokafrágangur gatnagerðar verði á næsta ári þegar Skólastígur verður malbikaður fyrir framan Dvalarheimilið. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar framkvæmdir kunna að skapa.
Getum við bætt efni síðunnar?