Fara í efni

Fjarkynning á menningarstyrkjum úr uppbyggingarsjóði Vesturlands

26.10.2020
Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð Vesturlands. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2020.

Af því tilefni stendur menningarfulltrúi Vesturlands hjá SSV fyrir fjarkynningu um Uppbyggingarsjóð og menningarverkefni og svarar spurningum þátttakenda á Facebook síðu SSV.
Jafnframt er hægt að bóka viðtal við menningarfulltrúa og fá ráðgjöf vegna menningarverkefna en að sama skapi er hægt að fá ráðgjöf vegna atvinnu- og nýsköpunarverkefna hjá atvinnuráðgjöfum SSV. Nánari upplýsingar um það má finna hér.
Fjarkynningin verður haldin miðvikudaginn 28. október kl. 17:30, og verður fjarkynningin aðgengileg á síðunni eftir að streyminu líkur.

Hér má finna link á viðburðinn á Facebook.

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Getum við bætt efni síðunnar?