Fara í efni

Ferðaþjónusta í Stykkishólmi - Fundur um samstarfsverkefni á sviði ferðaþjónustu í Stykkishólmi

17.04.2019
Fréttir

Stykkishólmsbær og Efling Stykkishólms boða til fundar um samstarfsverkefni á sviði  ferðaþjónustu í Stykkishólmi í Amtsbókasafninu þriðjudaginn 23. apríl n.k. kl. 20:00.

Sjá nánar hér: https://www.facebook.com/events/2011682662470671/ 

Markmið fundarins er að fá þá aðila sem sinna ferðaþjónustu í Stykkishólmi saman að samstarfsborði, varpa ljósi á það sem verið er að gera og horfa til framtíðar. Ræða um framtíðarhorfur og hvað við getum gert til að efla ferðaþjónustu í Stykkishólmi enn frekar.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  • Ragnhildur Sigurðardóttir hjá Svæðisgarðinum Snæfellsnes fer yfir áhersluverkefni hjá Svæðisgarðinum, sem er farvegur fyrir samstarf á Snæfellsnesi.
  • Heimir Berg Vilhjálmsson, markaðs- og upplýsingafulltrúi í Snæfellsbæ, kynnir sameiginlega markaðssetningu á samfélagsmiðlum fyrir allt Snæfellsnes.
  • Hjördís Pálsdóttir, formaður Eflingar og forstöðumaður safnanna í Stykkishólmi, fjallar um helstu verkefni á dagskrá Eflingar.
  • Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri, fer yfir aðkomu og stefnumótun Stykkishólmbæjar í ferðaþjónustu og fyrirliggjandi verkefni.
  • Önnur mál og umræður.
  • Við hvetjum alla sem hagsmuna hafa að gæta af komu ferðamanna til Stykkishólms til að mæta á Amtsbókasafnið og taka þátt í fundinum

     

    Stykkishólmsbær og Efling Stykkishólms

      


    Getum við bætt efni síðunnar?