Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir stöðu félagsráðgjafa lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf.
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (FSS) annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi, Snæfellsbæjar, Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar og Eyja-og Miklaholtshrepps.
Í sveitarfélögunum búa tæplega 3.900 íbúar.
Hjá FSS starfa auk forstöðumanns, skólasálfræðingur, tveir félagsráðgjafar, tveir þroskaþjálfar, náms- og starfsráðgjafi, talmeinafræðingur auk starfsfólks dagþjónustu- og hæfingarstöðva og stuðningsþjónustu sveitarfélaganna.
Umsækjandi hafi starfsréttindi félagsráðgjafa.
Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar félags- og skólaþjónustu, barnaverndar og stuðningsþjónustu sveitarfélaga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands.
Skrifleg umsókn er tilgreini menntun, starfsferil, 1-2 umsagnaraðila ásamt prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði berist Sveini Þór Elinbergssyni, forstöðumanni sem jafnframt veitir frekari upplýsingar um starfið
í síma 430-7800, 861-7802 og tölvupósti sveinn@fssf.is
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ
Umsóknarfrestur er til 15. desember