Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir lausar stöður
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laus til umsóknar eftirtalin störf:
Forstöðumaður Smiðjunnar
Menntun: Þroskaþjálfa- eða iðjuþjálfamenntun ellegar sambærileg menntun og reynsla er nýtist í starfi forstöðu vinnustaðar með fólki með skerta starfsgetu.
Náms- og starfsráðgjafi.
Menntun: Starfsréttindi náms- og starfsráðgjafa.
Umsækjendur ofantalinna starfa hafi m.a. til að bera:
góða samvinnu- og samskiptahæfileika, jákvæðni og frumkvæði, geti unnið sjálfstætt sem og í þverfaglegu samstarfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Skriflegar umsóknir um störfin er tilgreini menntun, starfsferil og umsagnaraðila, ásamt prófskírteini og sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir frekari upplýsingar.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 12. NÓVEMBER 2020
Sveinn Þór Elínbergsson, forstöðumaður
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær