Fara í efni

Desember í Norska húsinu.

03.12.2019
Fréttir

Síðastliðinn föstudag, 29. nóvember opnaði jólasýning safnins 24 dagar til jóla ? Börnin fara að hlakka til. Á sýningunni ber að líta allskyns leikföng frá ýmsum tímum sem ætla má að börn gætu hafa fengið í jólagjöf.

Fimmtudaginn 5. desember verður safnið opið frá kl. 20-22 og ýmsar vörur í Krambúðinni verða á 20% afslætti.

Á annan í aðventu, sunnudaginn 8. desember kl. 14:00 munu þau Ingi Hans Jónsson og Siguborg Kr Hannesdóttir rifja upp ýmislegt um sögu jólanna.

Jólamarkaður verður fimmtudagskvöldin 13. og 20. des kl. 20-22.

Þann 14. desember verður ratleikur á safninu og jólasveinar kíkja í heimsókn.

Safnið er opið alla daga fram að jólum frá kl. 11-17, á Þorláksmessu verður opið frá kl. 11-22.

Getum við bætt efni síðunnar?