Fara í efni

Deiliskipulagsbreyting fyrir Víkurhverfi tekur gildi

06.12.2022
Fréttir

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis var samþykkt í bæjarstjórn 30. mars 2022 og var hún auglýst frá 12. apríl til 25. maí 2022. Gerðar voru minniháttar breytingar á tillögunni til þess að koma til móts við athugasemdir sem bárust. Að því loknu var hún send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun, sem gerði ekki athugasemdir.

Deiliskipulagsbreytingin tekur gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda 8. desember nk. Kærufrestur til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Smelltu á myndina til að stækka.

Getum við bætt efni síðunnar?