Danssýning Grunnskólans í Stykkishólmi
Danssýning Grunnskólans í Stykkishólmi fer fram í íþróttamiðstöðinni kl. 12.10 í dag, þriðjudaginn 1. október. Sýningin er opin öllum.
Undanfarin misseri hefur dansskóli Jóns Péturs og Köru sinnt danskennslu við grunnskólann og leikskólann í Stykkishólmi. Danssýningin er á mörgum heimilum mikið tilhlökkunarefni, en hún er einskonar uppskeruhátíð danskennslunar og markar jafnframt lok hennar þetta árið.