Fara í efni

Danskir dagar 2019

12.08.2019
Fréttir

Bæjarhátíðin Danskir dagar fer fram í Stykkishólmi dagana 15. til 18.ágúst.  Frá árinu 1994 hafa Hólmarar haldið Danska daga og er hátíðin 25ára í ár.

Líkt og í fyrra er  skipulag hátíðarinnar í höndum starfsmannasafnanna ásamt fleirum.

Dagana fyrir hátíðina verður boðið upp á smærri viðburði svo sem upplesturá Vatnasafni, listasmiðju fyrir börn, 20 ára afmæliveislu SundlaugarStykkishólms og fleira.

Formleg setning hátíðarinnar er föstudagskvöldið 16. ágúst, þar koma framtónlistarmaðurinn Daði Freyr og hljómsveitin Þrír. Dagskráin verður með dönskuívafi alla helgina, meðal annars verða sýndar danskar bíómyndir íEldfjallasafninu, grillað verður snobrød í Nýrækt og æbleskiver bakaðar íNorska húsinu svo dæmi séu tekin. Í boði verður ýmis afþreying fyrir börn áöllum aldri, má þar nefna, dorgveiðikeppni, tunnulest, brjóstsykursgerð ogmargt fleira. Álaugardagskvöldinu verður brekkusöngur og svo skella sér allir á ball meðStuðlabandinu í Reiðhöllinni.

Stykkishólmur hefur verið framarlega í umhverfismálum undanfarin ár oghefur tekið þá ákvörðun með undirbúningsnefnd að vera ekki með flugeldasýninguá hátíðinni líkt og fyrri ár.

 

Fyrir hönd undirbúningasnefndar Hjördís Pálsdóttir

Getum við bætt efni síðunnar?