Fara í efni

Dagur tónlistarskólanna

26.02.2019
Fréttir

Dagur tónlistarskólanna, 9. febrúar, er haldinn hátíðlegur víða um land og munu nemendur Tónlistarskóla Stykkishólms láta ljós sitt skína næstkomandi laugardag (2. mars) kl. 14:00.

Munu þeir bjóða gestum upp á fjölbreytt tónlistaratriði, hljóðfæraleik og söng úr öllum deildum skólans og eru allir hjartanlega velkomnir.

Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en að tónleikum loknum verður foreldrafélag lúðrasveitarinnar með kaffihlaðborð á vægu verði.

Við hvetjum sem allra flesta til að koma og hlýða á tónlistarfólkið okkar á laugardaginn!

Getum við bætt efni síðunnar?