Fara í efni

Bókasafnsdagurinn er í dag

09.09.2019
Fréttir

Í dag, mánudaginn 9.september, er bókasafnsdagurinn.Í tilefni þess er boðið upp á sérstaka dagskrá á bókasöfnum víðsvegar umlandið.

Á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi verður boðiðupp á léttar veitingar með kaffinu auk þess sem þau börn sem tóku þátt ísumarlestrinum geta mætt og fengið glaðning að launum. Nú er kjörið tækifæritil að endurnýja, eða sækja um, bókasafnsskírteini þar sem þau eru ókeypis ídag.

Líkt og aðra mánudaga er opið frá 14:00-18:00.


Getum við bætt efni síðunnar?