Fara í efni

Blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingar í Bónus

12.11.2019
Fréttir

Næstkomandi fimmtudag, þann 14. nóvember, er alþjóðlegisykursýkisdagurinn. Af því tilefni helga lionsklúbbar sig sykursýkisvörnum ínóvember. Á fimmtudaginn verða lionsfélagar við blóðsykurs- ogblóðþrýstingsmælingar í verslun Bónus í Stykkishólmi á milli kl. 16 og 18 fólkiað kostnaðarlausu. Einnig verður þar kynnt smáforritið Retina Risk en það gerirfólki með sykursýki kleift að meta áhættu sína á að fá sjónskerðandiaugnsjúkdóma. Tæp 70% fólks með sykursýki fær augnbotnabreytingar en koma má íveg fyrir sjónskerðingu og blindu í yfir 90% tilvika með tímanlegri greininguog meðferð. Retina Risk smáforritið er nú fáanlegt á íslensku gjaldfrjálst. 

Nánarum Retina Risk hér.

Getum við bætt efni síðunnar?