Fara í efni

Björgunarsveitin Berserkir færðu leikskólabörnum gjöf

14.12.2022
Fréttir

Síðast liðinn föstudag mættu þau Björn Ásgeir og Rebekka Sóley frá Björgunarsveitinni Berserkjum og færðu leikskólanum að gjöf öryggisvesti á nemendur og einnig endurskinsmerki sem börnin fengu með sér heim. Leikskólinn þakkar kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem nýtist vel í skammdeginu.

Vestin voru afhend við söngstund í sal leikskólans sl. föstudag.

Sigrún, leikskólastjóri, mátar vesti á börnin.
Getum við bætt efni síðunnar?