Fara í efni

Best skreytta húsið í Stykkishólmi

27.12.2022
Fréttir

Hefð hefur skapast fyrir því að veita viðurkenningu fyrir best skreytta húsið í Stykkishólmi fyrir jólin. Nemendur níunda bekkjar grunnskólans sáu um valið og veittu viðurkenninguna að lokinni friðargöngu á Þorláksmessu. Það voru þau Ellert og Jóhanna að Skólastíg 2 sem hlutu viðurkenningu fyrir fallega skreytingu þetta árið. Við óskum þeim innilega til hamingju.

Ellert, Jóhanna og Helgi taka við viðurkenningunni frá nemendum níunda bekkjar.

Skólastígur 2
Getum við bætt efni síðunnar?